Velkomin í LBHÍ
Við sérhæfum okkur á sviði náttúrunnar í víðum skilningi. Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina? Fæðuöryggi, hönnun umhverfis okkar og skipulagsmál sem og verndun og nýting auðlinda jarðarinnar eru okkar sérsvið. LBHÍ er náttúrulega framúrskarandi háskóli. Nám í LBHÍ undirbýr þig vel fyrir störf í framtíðinni og við stundum rannsóknir á sérsviðum skólans.
Við bjóðum nýnema velkomna - Allt um fyrstu skrefin í LBHÍ
Framtíðarstefna

Starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands snertir öll 17 sjálfbærnimarkmið Sameinuðu Þjóðanna að engu undanskildu. Stefna skólans til framtíðar speglar sig að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og stefnu ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun, loftslagsmarkmið, ósnortin víðerni og verndun náttúru og lífs.
Rannsóknir

Landbúnaðarháskóli Íslands gegnir lykilhlutverki í þeim þáttum samfélagsins sem snúa að þróun landbúnaðar, nýtingu náttúruauðlinda, skipulagsmála, umhverfis- og loftslagsmála sem og samfélagsins og efnahagslífsins í heild. Rannsóknir spila stórt hlutverk í starfsemi okkar sem snýr að lykilsviðum okkar.
RÆKTUN & FÆÐA
NÁTTÚRA & SKÓGUR
SKIPULAG & HÖNNUN
Spennandi námsleiðir fyrir þig
Fjölbreytt námsframboð í persónulegum skóla






