Aðstaða til verklegs náms
Bú skólans

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur um árabil staðið fyrir umfagsmiklum búrekstri á Hvanneyri og Hesti í Borgarfirði.
Hvanneyrarbúið ehf
Sú breyting varð frá og með áramótum 2024-2025 að Hvanneyrarbúið ehf sér um allan búrekstur Landbúnaðarháskólans. Þannig færðist Sauðfjárræktarbúið á Hesti undir starfsemi Hvanneyrarbúsins. Hvanneyrarbúið ehf er félag sem er alfarið í eigu LbhÍ og hlutverk þess er búrekstur á hagkvæman hátt með áherslu á að þjónusta kennslu og rannsóknir fyrir LbhÍ og aðra aðila. Samhliða þessum breytingum var fjölgað um tvo í stjórn búsins.
Stjórn Hvanneyrarbúsins
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LbhÍ og stjórnarformaður, Baldur Helgi Benjamínsson, Pétur Diðriksson, Oddný Steina Valsdóttir og Eyþór Einarsson.
Starfsmenn Hvanneyrarbúsins
Egill Gunnarsson bústjóri, Björn Ingi Ólafsson fjósameistari, Heiðar Árni Baldursson fjármeistari og Vildís Þrá Jónsdóttir bústarfsmaður og aðstoðarmaður rannsókna og kennslu.
Á Hesti eru um 620 fjár á vetrarfóðrum en á Hvanneyri eru um 65 mjólkandi kýr auk uppeldis eða um 150 lifandi nautgripir. Til búrekstursins eru undir jarðirnar Hvanneyri, Hestur, Mið-Fossar, Kvígsstaðir og Mávahlíð.
Kúabú

Hvanneyrarbúið ehf sér um rekstur kúabúsins á Hvanneyri. Þar er mjólkurframleiðslubú og framleiðir um 460 þúsund lítra á ári ásamt því að sinna kennslu og rannsóknum í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands. Á Hvanneyri eru 65 mjólkandi kýr auk uppeldis eða um 150 lifandi nautgripir.
Bústjóri er Egill Gunnarsson
Fjósameistari er Björn Ólafsson
Hvanneyrarbú er tilrauna og kennslufjós

Sauðfjárbú

Á Hesti í mynni Lundareykjadals er rannsóknarbú fyrir sauðfé og er það eitt fremsta sauðfjárbú í landinu í dag. Þar fer fram verkleg kennsla í sauðfjárrækt. Á Hesti eru um 620 fjár á vetrarfóðrum.
Bústjóri er Heiðar Árni Baldursson
Sauðfjárbúið að Hesti

Hestamiðstöð

Bústjóri er Guðbjartur Stefánsson
Starfsmaður bús Ragnheiður Ósk Helgadóttir
Á Mið-Fossum er öll aðstaða til hestamennsku
