Nýnemar
Velkomin til náms við Landbúnaðarháskóla Íslands!
LbhÍ er skóli með mikla sérstöðu. Skólinn býður hvort tveggja upp á nám á framhaldsskólastigi og á háskólastigi. Aðalstarfsstöð LbhÍ er á Hvanneyri en einnig er starfsstöð á Keldnaholti í Reykjavík.
Nemendur hafa gott aðgengi að kennurum og leitast starfsfólk skólans eftir því að skapa nemendum sínum góða vinnuaðstöðu á starfsstöðum skólans. Við bjóðum staðarnám og einnig fjarnám í mörgum fögum Á hverju hausti eru haldnir Nýnemadagar fyrir alla nýnema þar sem farið er yfir helstu atriði.
Hér fyrir neðan er að finna allt námsframboð og helstu upplýsingar til nýnema.
Allar frekari upplýsingar færðu hjá kennsluskrifstofu LbhÍ í síma 433-5000 eða á netfanginu kennsluskrifstofa@lbhi.is.
Skráningargjöld
Skráningargjöld LbhÍ eru 75.000 kr fyrir grunn- og framhaldsnám háskólabrauta og 50.000 kr fyrir nám á framhaldsskólastigi. Skráningargjöld eru óafturkræf.
Námsfyrirkomulag
Námsárinu er skipt í fjórar stuttannir. Hver stuttönn er sjö vikur og að þeim loknum eru próf. Þetta veitir nemendum möguleika að einbeita sér að færri fögum í einu. Tvær stuttannir að hausti og tvær að vori. Einstök námskeið í háskóladeild standa yfir tvær stuttannir.
Þeir nemendur sem eru skráðir í fjarnám koma í staðarlotur þar sem farið er í verklegar æfingar eða vettvangsferðir.
Aðgangur að kerfum skólans
Þegar greiðsla hefur verið innt af hendi þarftu að sækja um aðgang að nemendaskrárkerfinu UGLA inn á námsumsóknasíðunni. Á Uglu má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar, m.a. starfsáætlun skólans ásamt stundaskrá og bókalista sem birtast þegar nær dregur upphafi skólaárs. Athugið að sólarhringur þarf að líða frá greiðslu þar til hægt er að sækja um aðgang. Frekari upplýsingar á kennsluskrifstofu.
Gott að vita – hvert ber að snúa sér
- Vottorð, hvor tveggja skil á vottorði sem og beiðni um vottorð – kennsluskrifstofa
- Úrsögn úr áfanga (í síðasta lagi sjö dögum fyrir próf) – kennsluskrifstofa
- Úrsögn úr skóla – kennsluskrifstofa
- Vandamál tengd Uglu, notendanafn glatað, leiðrétting á skráning – kennsluskrifstofa
- Nemendagarðar, útleiga, skil og önnur aðstoð – Umsjónarmaður nemendagarða (hafdisjo@lbhi.is)
- Staðfesting á skólavist - móttaka í Ásgarði
- Nemendaskírteini - móttaka í Ásgarði
- Námsmat – Kennsluskrifstofa
- Próftafla, próf og sjúkra- og endurtökupróf – kennsluskrifstofa
- Spurningar um einstök námskeið, s.s. skyldumæting, námsferðir, verklegir tíma og annað innra starf – kennari í viðkomandi námskeiði
- Hesthús og/eða hesthúsapláss á Mið Fossum – midfossar@lbhi.is
- Kvittanir fyrir greiðslu – móttaka í Ásgarði / gjaldkeri
- Tímapöntun hjá náms- og starfsráðgjafa – námsráðgjafi Þórey Þórarinsdóttir, nams@lbhi.is
- Skiptinám og alþjóðamál – alþjóðafulltrúi (inter@lbhi.is)
- Bókasafn skólans er staðsett á Hvanneyri og hægt er að fá afgreiddar bækur á Keldnaholt – bokasafn@lbhi.is
- Aðstoð vegna tölvu- og tæknimála – tölvuþjónsta (hjalp@lbhi.is)
- Prent- og ljósritunarinneign – móttaka í Ásgarði
Handbók nemenda er að finna á Uglu. Starfsáætlun skólans er einnig að finna á Uglu.