BISC-E nýsköpunarkeppnin er keppni meðal háskólanemenda í Lífvísinda- og landbúnaðarháskólum í Evrópu sem haldin er árlega. Á hverju vori fer fram keppni í hverju landi fyrir sig þar sem valið vinningsteymi sem fær þátttökurétt í evrópsku keppninni sem haldin er að hausti.
Í ár voru það Liam Adams O´Malley, Sigrún Emelía Karlsdóttir og Man B K sem unnu íslensku keppnina. Verkefni þeirra snýr að því að framleiða áburð með því að nýta hringrás næringarefna á sem bestan máta. Við óskum þeim innilega til hamingju og velfarnaðar í evrópsku keppninni í haust.
Nánari upplýsingar um BISC-E nýsköpunarkeppnina er hægt að nálgast hér: About BISC-E | Bio-based Industries Consortium (BIC) (biconsortium.eu)