Fundað var um kynbótastarf og mikilvægi jarðræktartilrauna.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sækir heim Jarðræktarmiðstöð LbhÍ

Umræður í lok fundar.
Fundagestir ræða málin í lok fundar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Kristján Þór Júlíusson sótti heim Jarðræktarmiðstöð LbhÍ á Hvanneyri í gær og kynnti sér aðstöðu og aðbúnað til jarðræktarrannsókna.

Á fundinum var farið yfir kynbótastarfið sem hefur verið unnið, stöðu ræktunarinnar og nýsköpunar í greininni. Líflegar umræður sköpuðust á fundinum. Fundargestir úr ólíkum áttum voru sammála um að tryggja þyrfti fjármagn til rannsókna og efla yrði markað með innlent korn. Ásamt ráðherra komu gestir úr atvinnulífinu og Bændasamtökunum sem eiga það sameiginlegt að bera hag kornræktarinnar sem búgreinar fyrir brjósti.

Fundurinn var haldinn í húsnæði Jarðræktarmiðstöðvar LbhÍ á Hvanneyri og var hægt að virða fyrir sér tækjakost miðstöðvarinnar og skoða ýmislegt tengt rannsóknum skólans. Rektor Landbúnaðarháskólans Ragnheiður I. Þórarinsdóttir opnaði fundinn og Hrannar Smári Hilmarsson tilraunastjóri hjá Jarðræktarmiðstöð LbhÍ, Snorri Þorsteinsson jarðræktarráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins og Júlíus Birgir Kristinsson hjá ORF líftækni héldu erindi.

Að loknu kaffi voru umræður þar sem Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri og Pétur Diðriksson bóndi á Helgavatni sögðu frá sinni reynslu af þróun og notkun á innlendu fóðri og lögð var áhersla á nauðsyn þess að koma upp stöðvum til þurrkunar á korni hérlendis sem og á að tryggja fjármagn fyrir samfelldar kynbætur.

 

--
Tengt efni

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image