Opinn streymisfundur þar sem skýrslu LbhÍ Fæðuöryggi á Íslandi verður kynnt. MYND ANR

Kynning á skýrslu um Fæðuöryggi á Íslandi

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins fundar um skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um fæðuöryggi á Íslandi fimmtudaginn 11. febrúar kl 10:15.

Fundinum verður streymt á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sjá tilkynnningu þess efnis hérá Youtube og á Facebook síðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir Í skýrslunni, sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands að beiðni ráðherra, er ítarleg umfjöllun um innlenda matvælaframleiðslu og lagt mat á áhrif þess ef upp kæmi skortur á aðföngum sem nauðsynleg eru fyrir framleiðsluna. Einnig er fjallað um þætti sem gætu stuðlað að auknu fæðuöryggi á Íslandi.

Dagskrá:

  • Ráðherra opnar fundinn
  • Jóhannes Sveinbjörnsson dósent kynnir niðurstöður skýrslunnar ásamt Þóroddi Sveinssyni deildarforseta við LBHÍ
  • Spurt og svarað með skýrsluhöfundum

Hægt er að senda inn spurningar í gegnum Slido til skýrsluhöfunda með #faeduoryggi.

Hér má finna skýrsluna og hér er hún sem pdf skjal

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image