Doktorsvörn Heiðrúnar Sigurðardóttur í búvísindum

Fimmtudaginn 30. janúar 2025 mun Heiðrún Sigurðardóttir verja doktorsritgerðina sína “Exploring the Genetic Regulation of Ability and Quality of Gaits in Icelandic Horses“. Vörnin mun fara fram við SLU í Uppsala, Svíþjóð, milli kl. 8 og 11 að íslenskum tíma og verður streymt beint á vefnum í gegnum Zoom (hlekkur hér / Passcode: 568792). 

Ritgerðin hefur verið gerð opinber inni á opinvisindi.is - https://hdl.handle.net/20.500.11815/5222

Doktorsverkefnið var/er samstarfsverkefni milli LbhÍ og SLU sem Heiðrún hefur unnið að síðan í nóvember 2019, þar sem ég var að hluta til með aðstöðu hjá LbhÍ á Keldnaholti og að hluta til hjá SLU Í Uppsala. Leiðbeinandi Heiðrúnar hjá LbhÍ er Dr. Þorvaldur Kristjánsson og hjá SLU Dr. Susanne Eriksson. Þar að auki eru Dr. Gabriella Lindgren (SLU), Dr. Marie Rhodin (SLU) og Dr. Elsa Albertsdóttir (sjálfstætt starfandi) meðleiðbeinendur.

Andmælendur eru Dr. Ernest Bailey, prófessor við M.H. Gluck Equine Research Center, University of Kentucky, US, og Dr. Kathrin Stock við VIT stofnunina í Þýskalandi.

Föstudaginn 31. janúar, milli kl. 8 og 11 að íslenskum tíma, verður málstofa í tilefni varnarinnar þar sem andmælendurnir halda erindi. Málstofan er opin öllum áhugasömum og kemur hlekkur hér þegar nær dregur.

Vörnin er opin öllum!

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image