Stjórnvöld styðja við sumarnám. spennandi námskeið í boði hjá okkur.

Sumarnámskeið í boði

Stjórnvöld styðja við sumarnám menntastofnanna til að sporna gegn atvinnuleysi og efla menntun meðal ungs fólks. Landbúnaðarháskóli Íslands mun bjóða uppá námskeiðspakka í sumar og eru þar skyldufög á einhverjum brautum BS náms sem hægt að nýta sem valfög í öllu grunnnámi og einhverjum tilfellum til framhaldsnáms einnig. Að auki verður valkúrs í boði á starfsmenntanámsstigi. Nemendur sem eru þegar innritaðir í nám á vorönn 2020 greiða ekki skráningargjald vegna sumarnámskeiða. Námskeiðin okkar standa öllum nemendum hinna opinberu háskólanna til boða í gegnum gestanámssamning skólanna án kostnaðar. Námskeiðin eru einnig í boði fyrir áhugasaman almenning í gegnum Endurmenntun LbhÍ. Kennslutímabilið er frá 25. maí til 10. júlí 2020. Lágmarksþátttaka í hvert námskeið er 12 manns.

 

 

 

Námskeið í boði:

  • Jarðfræði Íslands - 4 ECTS 
  • Náttúruvernd - 4 ECTS
  • Sjálfbær þróun - 4 ECTS
  • Mengun - uppsprettur og áhrif - 6 ECTS 
  • Sustainable agriculture: The intersection of Agroecology and Sustainable Rural Development - 2 ECTS 
  • Farsæll matarfrumkvöðull - 2 ECTS / 2 fein (nýr valkúrs, bæði á háskólastigi og starfsmenntanámsstigi) 
  • Umhverfismat áætlana og undirbúningur umhverfisskýrslu - 2 ECTS
  • Ný úrræði í meðhöndlun á lífrænum úrgangi - 2 ECTS (nýr valkúrs) 

Einnig verður boðið upp á grunnnámskeið í efnafræði og bókhaldi síðsumars. Þau námskeið eru hugsuð sem undirbúningsnámskeið fyrir nýnema næsta hausts og eru því ekki einingarbær inn á feril hjá LbhÍ en gætu ef til vill gagnast einhverjum sem þarf á frekari undirbúningi á þessum sviðum.

Umsóknarfrestur er til og með 21.maí. Skráning og upplýsingar hjá This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og í síma 433 5000

Hér má finna skjal með nánari lýsingum á námskeiðunum.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image