Snæbjörn Jack er fyrsta árs nemi á náttúru- og umhverfisfræðibraut og valdi að fara í staðarnám til að komast út úr borginni og fá betri tengsl við fjölbreytileika íslenskrar náttúru. Mynd aðsend

Námið umbreytti sýn minni á heiminn

Nemendur í náttúru- og umhverfisfræði í vettvangsferð í haust. Ljósm. Björn Þorsteinsson
Nemendagarðar skólans á Hvanneyri þar sem hægt er að leiga íbúðir og herbergi af ýmsum stærðum

Ég heiti Snæbjörn Jack og er á fyrsta árs nemi á náttúru- og umhverfisfræðibraut í Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) og bý á nemendagörðum á Hvanneyri.

„Ég valdi að fara í staðarnám vegna þess að ég vildi komast út úr borginni og fá betri tengsl við fjölbreytileika íslenskrar náttúru.“

Tenging við náttúruna

Þegar ég var lítill voru foreldrar mínir að læra hér landslagsarkitektúr svo ég vissi að umhverfið á Hvanneyri væri æðislegt. Svæðið í kring veitir einstaka blöndu af orku og ró. Þegar ég labba í skólann frá íbúðini minni blasa við mér fjöll og fuglalíf. Þð getur líka orðið ótrúlega störnubjart hérna vegna lítillar ljósmengunnar og ég hef nýtt mér það til að læra að þekkja fleiri stjörnumerki og gíga á tunglinu. Skólinn á Hvanneyri er staðsettur í miðju fuglafriðlandi og á mörgum ferðum mínum um svæðið hef ég fengið að kynnast aragrúa fuglategunda. Haförninn er líklegast tignalegastur þeirra sem maður kemur auga á þegar maður starir útum skólastofugluggann og enn fleiri fylla himininn t.d. brandugla, fálki, starar, rjúpur, blesgæsir og ég gæti lengi talið.

Sterkt félagslíf

Það sem kom mér mest á óvart var félagslífið. Fólk hérna kann vel að skemmta sér. Ég hef eytt mest af ævi minni í Reykjavík eða öðrum stórborgum víða um heim og þess vegna fannst mér smá menningarsjokk að kynnast þeim sem landsbyggðin hefur alið á færi en ég var fljótur að komast yfir það og njóta góðs af þessu æðislega fólki. Hér er bar sem er opinn á þriðjudögum og fimmtudögum þar sem oft eru haldin bíókvöld, pub-quiz, böll eða bara venjuleg skemmtun og pool. Það er líka ótrúlega auðvelt að skipuleggja hluti sjálfur hérna ef þú hefur áhuga á einhverri nýlundu. Eftir nokkrar vikur þekkir maður sirka alla. Allir í nemendagörðunum eru sjúklega vinalegir og mér hefur oft verið boðið í teiti og matarboð. Það eru mörg félög innan skólans, bæði formleg og óformleg (eins og kvæðafélagið). Í skólanum er rík sönghefð og það kemur margoft fyrir að sungið er fram á nótt.

Fjölbreytt og gott nám

Kennslan er mjög vel uppsett og maður er í mjög góðum samskiptum við kennara og starfsfólk skólans Eftir að hafa verið hér í eina önn þekki ég næstum allt starfsfólkið og aðra nýnema á öllum mismunandi bratum. Það myndast oft mjög áhugaverðar samræður í og utan tíma sem snúast um fjölbreytta hluti eins og umhverfismál, pólitík og almennt sprell eða rabb um veður og verðið í búðinni. Ég mæli hiklaust með því að koma á nemendagarðana á Hvanneyri og læra um náttúruna. Þetta nám mun nýtast mjög vel á svo mörgum sviðum í framtíðinni því þessi mál eru í eldlína tímanna sem við lifum. Námið er fjölbreytt og gefur mjög heildstæða sýn á þau kerfi og ferli sem mynda heiminn sem við sjáum í kringum okkur. Áfangar spanna allt frá vist- og jarðfræði til rekstrar- og byggingarfræða og að sögu og siðfræði.

„Hingað til hefur þetta nám umbreytt því hvernig ég sé heiminn í kringum mig og ég er bókstaflega alltaf að læra eitthvað nýtt og ótrúlegt á hverjum degi. Súpan sem Óli kokkur á Hvanneyri gerir í hádeginu fær líka feitt shout-out.“

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image