Ruth Phoebe Tchana Wandji ver í dag doktorsritgerð sína á sviði Náttúru - og umhverfisfræði við deild Náttúru og skóga við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Ritgerð Ruth Phoebe ber heitið „Effects of soil warming on growth processes of unmanaged subarctic grasslands“ sem á íslensku er Áhrif jarðvegshlýnunar á vaxtarferla í náttúrulegum graslendum.
Vörnin fer fram í dag, 26. júni nk. á Keldnaholti, Árleyni 22, Reykjavík og hefst klukkan 9:00. Vörninni verður einnig streymt á Teams. Vörnin fer fram á ensku. Hlekk á vörnina má finna hér.
Leiðbeinendur Ruth Phoebe eru prófessor Bjarni Diðrik Sigurðsson, Landbúnaðarháskóla Íslands, Dr. Peter Lootens og Dr. Iolanda Filella. Andmælendur eru Rúna Magnússon, lektor, Wageningen University & Research í Hollandi og Dr, Guðrún Óskarsdóttir, Náttúrustofu Austurlands.