Verið velkomin að kynna ykkur meistaranámið í skipulagsfræði á opnum degi á Keldnaholti í Reykjavík þar sem öllum fyrirspurnum um námið verður svarað. Starfsfólk og nemendur verða á staðnum og svara spurningum.
Kynningin er opin öllum og verður 19. maí milli kl 16 og 17:30 á Keldnaholti í Reykjavík.
Einnig er hægt að fylgjast með Facebook síðu námsbrautarinnar meistaranám í skipulagsfræði, en þar eru ýmsir opnir viðburðir tilkynntir sem veita innsýn í málefni skipulagsfræða og námsbrautarinnar.