Ingólfur Pétursson ver meistararitgerð sína í Náttúru- og umhverfisfræði „Eiginleikar stjórnsýslu sem hafa áhrif á útbreiðslu Birkiskóga á Íslandi“ e. „Governance Attributes influencing the Expansion of the Birch Woodlands in Iceland“ við deild Náttúru & Skóga við Landbúnaðarháskóla Íslands. Leiðbeinendur Ingólfs eru Dr. Þórunn W. Pétursdóttir og Dr. Ása L. Aradóttir. Prófdómari er Dr. Jón Geir Pétursson.
Meistaravörnin fer fram mánudaginn 30. júní 2025 kl. 10:30 í Sauðafelli, Keldnaholti, Árleyni 22 112 Reykjavík og á Teams. Hér má nálgast hlekk á vörnina. Vörnin er öllum opin.
Ágrip
Þessi rannsókn kannar þá eiginleika stjórnsýslu sem hafa áhrif á endurheimt birkivistkerfa á Íslandi í samhengi sögu og stjórnkerfa. Tilgangur þess var varpa ljósi á núverandi stöðu og að veita innsýn fyrir stefnumótandi völd og náttúruverndarsinna sem vilja bæta framgang birkivistkerfanna.
Verkefnið byggir á rannsókn skriflegra heimilda um endurheimt birkivistkerfa og stjórnsýslu landnýtingar, náttúruverndar og endurheimtar ásamt viðtölum við 11 sérfræðinga innan þeirra geira sem snerta á birkiskógum, stjórnsýslu, landnýtingu og endurheimt. Þessi gögn voru notuð til að greina stjórnsýslu og landnýtingu á Íslandi er snýr að endurheimt birkivistkerfanna. Sú greining leiddi í ljós ýmsa hvata sem bæði geta stuðlað að aukinni endurheimt, svo sem samfélagslega hvata, stefnumótun og vistfræðilega þekkingu. Hindranir eins og skriffræðilega óskilvirkni, skort á fjármagni og samkeppni um landnýtingu.
Niðurstöðurnar sýna að margar mismunandi breytur hafa áhrif á endurheimt birkiskóganna og benda til þess að stjórnkerfið sé ekki eins skilvirkt og það gæti verið. Þetta bendir til þess að viðfangsefnið sé marglaga og flókið.