Margt var um manninn á æsispennandi viðureignum kvöldsins.

Viskukýrin haldin í 15. sinn

Viska hin XV heiðrar samkomuna meðnærveru sinni og naut athygli.
Bjölluspurningar í gangi í undanúrslinum.
Mikið er lagt uppúr umgjörð keppninnar og er boðið uppá súrmat og mjólk meðan á keppni stendur.
Sigurvegarar kvöldsins ásamt Loga Bergmann spyrli og Guðrúnu Bjarnadóttur sem veitti verðlaunin.

Viskukýrin 2019, hin árlega spurningakeppni á vegum nemendafélagsins fór fram í gær í XV skiptið. Spyrill var að vanda Logi Bergmann og fóru fram spennandi og skemmtilegar viðureignir.

Sigurvegarar kvöldsins voru liðsmenn Hvannahússins, Þau Iðunn, Guðmundur og Ellert sem háðu mikla baráttu við lið starfsmanna skólans. Einnig tóku þátt lið nemenda í búfræði, umhverfisskipulagi, búvísindum og lið heimamanna frá Hvanneyri. Verðlaunin veitti Guðrún Bjarnadóttir sem er einn af upphafsmönnum keppninnar. 

Gott kvöld og margt um manninn sem endaði svo með balli á öldurhúsi staðarins.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image