Vikuna 10.-16. október var haldið vikunámskeið á vegum Erasmusverkefninins TreProX. Það fjallar um viðargæði og staðla þar að lútandi, sem og skógarumhirðu. Samstarfsaðilar í verkefninu eru Landbúnaðarháskóli Íslands, Skógræktin, Trétækniráðgjöf, Kaupmannahafnarháskóli og Linnæus háskólinn í Svíþjóð.
Alls voru um 40 þátttakendur á námskeiðinu frá öllum samstarfslöndum, allt aðilar sem vinna með viðarafurðir og vilja bæta þekkingu sína á því sviði.
Námskeiðið heppnaðist ljómandi vel og voru þátttakendur mjög ánægðir með heimsóknina til Íslands. Nánar má lesa um námskeiðið á heimasíðu verkefnisins hér.
TreProX verkefnið hófst haustið 2019 og er til þriggja ára og er leitt af Landbúnaðarháskóla Íslands. Verkefnastjóri er Guðríður Helgadóttir auk þess sem Björgvin Örn Eggertsson og Christian Schultze koma að verkefninu fyrir hönd skólans. Í nóvember 2020 kom út bókin Gæðafjalir – viðskiptaflokkun á timbri úr barrtrjám og var hún fyrsta afurðin úr samstarfinu.
Heimasíða verkefnisins treprox.eu