Verkefnastjóri í Endurmenntun LbhÍ og kennari í hestafræðum

Verkefnastjóri í Endurmenntun LbhÍ og kennari í hestafræðum

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða verkefnastjóra í Endurmenntun háskólans sem jafnframt kemur að kennslu í hestafræðum. Um er að ræða fullt starf.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með námskeiðsframboði, námsgögnum og skipulagi í samstarfi við endurmenntunarstjóra

  • Þróun og uppbygging námskeiðsframboðs einkum á sviði reiðmennsku og hestafræða

  • Samskipti og miðlun upplýsinga til kennara og nemenda

  • Samskipti við helstu hagsmunaaðila innan og utan skólans

  • Undirbúningur og umsýsla námskeiða

  • Þróun námskeiða og kennsla í hestafræði og tengdum greinum við endurmenntun og aðrar deildir LbhÍ

  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í reiðkennslu/tamningum og reynsla af þjálfun hrossa

  • Reynsla af verkefnastjórnun

  • Reynsla af kennslu og fullorðinsfræðslu

  • Góð tölvukunnátta

  • Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp

  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum


Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2025


Nánari upplýsingar veitir

Guðmunda Smáradóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image