Úrslit Skeifudagsins 2018 á Mið-Fossum

Forseti Íslands afhendir verðlaun í Gunnarsbikarnum

Skeifudagurinn, keppni nemenda í reiðmennsku II við LbhÍ, fór fram á Mið-Fossum í Skorradal fyrsta dag sumars. Að hátíðinni stendur Hestamannafélagið Grani á Hvanneyri og fór dagurinn fram eins og best er á kosið. Nemendur á Hvanneyri hófu daginn með fánareið ásamt kennara og hélt Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, stutta ræðu.Töltgrúbba, sem telur 30 konar búsettar á Vesturlandi, voru með glæsilegt atriði og þá sýndu nemendur á Hvanneyri hvað þeir hafa verið að læra um veturinn. Nemendur í Reiðmanninum kepptu um Reynisbikarinn. Að lokinni dagskrá á Mið-Fossum var kaffihlaðboð í Ásgarði á Hvanneyri þar sem hið vinsæla folatollahappdrætti fór fram þar sem vinningar eru gjafabréf fyrir handhafa að leiða hryssu sína undir hina ýmsu stóðhesta og búa til framtíðargæðinga. Um 200 miðar seldust enda til mikils að vinna fyrir áhugasamt hestafólk. Aðstandendur að keppninni voru ánægðir með daginn en í ár er hann haldinn í 62. sinn. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mætti á hátíðina ásamt börnum sínum og veitt m.a. sigurvegurum verðlaunin.

 

Gunnarsbikarinn er gefin til minningar um Gunnar Bjarnason fyrrum hrossaræktarráðunaut, en nemendur keppa í fjórgangi.

Úrslit voru eftirfarandi:

1. Heiðar Árni Baldursson
2. Hólmfríður Ruth Guðmundsdóttir
3. Ágúst Gestur Guðbjargarson
4. Daníel Atli Stefánsson
5. Dagrún Kristinsdóttir

Félag tamningamanna gefur verðlaun þeim nemanda sem þykir sitja hest sinn best og þau verðlaun hlaut Heiðar Árni Baldursson.

Eiðfaxabikarinn hlaut Rebekka Rún Helgadóttir en hann er veittur þeim nemanda sem hlýtur hæstu einkunn í bóklegum áfanga (Hestafræði).

Framfaraverðlaun Reynis eru veitt þeim nemanda sem sýnt hefur hvað mestan áhuga, ástundun og tekið hvað mestum framförum í Reiðmennsku. Þau verðlaun hlaut Daníel Atli Stefánsson.

Morgunblaðsskeifuna hlaut Gunnhildur Birna Björnsdóttir en önnur sæti skipuðu:

2. Hólmfríður Ruth Guðmundsdóttir
3. Heiðar Árni Baldursson
4. Dagrún Kristinsdóttir
5. Ágúst Gestur Guðbjargarson

 

Reiðmannsnemendur keppa um Reynisbikarinn sem gefinn er ef fjölskyldu Reynis Aðalsteinssonar, upphafsmann Reiðmannsnámskeiðsins.

Úrslitin fóru þannig: 

1. Sigurður Halldórsson
2. Ágústa Rut Haraldsdóttir
3. Jónína Björk Vilhjálmsdóttir
4. Elfa Hrund Sigurðardóttir
5. Bragi Birgisson

Fleiri myndir frá Skeifudeginum má finna á Facebook síðu Grana.

Á hverju ári gefur Grani út svokallað Skeifublað og er hægt að nálgast það hér.

Myndir tók Árdís H. Jónsdóttir.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image