Unnsteinn Snorri ráðinn sem aðjúnkt við deild Ræktunar og fæðu

Unnsteinn Snorri Snorrason hefur hafið störf við LbhÍ og mun einkum koma að kennslu og rannsóknum á sviði landbúnaðarbygginga og bútækni.

Nýr aðjúnkt við deild Ræktunar og fæðu

Unnsteinn Snorri Snorrason hefur verið ráðinn tímabundið til eins árs sem aðjúnkt við deild Ræktunar og fæðu. Unnsteinn Snorri mun sinna kennslu, leiðbeina nemendum sem og koma að rannsóknum auk annarra tilfallandi verkefna t.d. við að byggja upp formlegt og reglulegt samstarf við hagaðila LbhÍ.

„Ég mun einkum koma að kennslu og rannsóknum á sviði landbúnaðarbygginga og bútækni.  Þetta er stórt fræðasvið þar sem er mikil og hröð þróun á heimsvísu með aukinni sjálfvirkni og notkun á gervigreind.  Við eigum hér mikil sóknarfæri og það verður gaman að taka þátt í því að efla enn frekar starf skólans á þessu sviði“. Sagði Unnsteinn Snorri um starfið.

Unnsteinn er með MS gráðu í búvísindum með áherslu á landbúnaðarbyggingar og bútækni og hefur sinnt bæði rannsóknum, kennslu og ráðgjöf á því sviði. Unnsteinn hefur frá árinu 2023 unnið sjálfstætt sem ráðgjafi en áður starfaði hann hjá Bændasamtökum Íslands, þar á undan m.a. sem framkvæmdastjóri hjá Landssamtökum sauðfjárbænda og ráðgjafi hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML). Unnsteinn er staðsettur á Hvanneyri og hefur þegar hafið störf.

Við bjóðum Unnstein Snorra innilega velkominn til starfa!

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image