Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) kynnir spennandi tækifæri fyrir doktorsnema sem hluti af sameiginlegu doktorsnámi UNIgreen háskólanetsins í matvælavísindum, matvælatækni og líftækni (XLI lota, 2025/2026).
Við LBHÍ er í boði doktorsstyrkur sem veitir einstakt tækifæri til að vinna að áhrifamiklum rannsóknum í alþjóðlegu akademísku umhverfi.
Doktorsstyrkur við LBHÍ
LBHÍ býður upp á einn fullan styrk fyrir doktorsnema á eftirfarandi rannsóknarsviði: „Stuðningur við vistvæna umbreytingu í landbúnaði í Evrópu: Stefnumótun, nýting auðlinda og efling nýsköpunar við raunaðstæður í landbúnaði” e. Enhancing Agroecological Transitions in the EU: Policy, Resource Efficiency, and Scaling of Innovations in Agricultural Living Labs (AELLs) Rannsóknin mun einblína á hlutverk stefnumótunar, nýtingu auðlinda og nýsköpunar til skölunar við raunaðstæður (Agricultural Living Labs) til að styðja við sjálfbærar breytingar í evrópskum landbúnaði.
Doktorsneminn mun hafa aðsetur við LBHÍ en mun einnig eiga kost á rannsóknardvöl hjá samstarfsháskólum í UNIgreen háskólanetinu.
Um námið
Sameiginlegt doktorsnám frá UNIgreen háskólanetinu Fullur styrkur sem nær yfir skólagjöld og framfærslustyrk (€16.243 á ári) Alþjóðlegt rannsóknarsamstarf innan UNIgreen netsins Tækifæri til rannsóknardvalar erlendis (lágmark 3 mánuðir) Kennsla fer fram á ensku
Hvernig á að sækja um
Umsóknartímabil hefst 17. mars 2025 og rennur út 9. maí 2025 (kl. 13:00 CET). Hægt er að sækja um í gegnum umsóknarsíðuna: UNIgreen doktorsnám – Umsókn
Nánari upplýsingar um doktorsnámið má finna hér: UNIgreen doktorsnám – Yfirlit
Ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara! Vertu hluti af leiðandi alþjóðlegu doktorsnámi og leggðu þitt af mörkum til nýrra rannsókna um sjálfbæran landbúnað og matvælaframleiðslu.
Fyrir frekari upplýsingar: