Um skipulag bæja endurútgefin

Um skipulag bæja eftir Guðmund Hannesson var endurútgefin í kennslubókarformi í upphafi árs 2017. Ritið er fyrsta fræðilega umfjöllunin um skipulagsmál á íslensku, það kom út árið 1916 sem fylgirit með Árbók Háskóla Íslands. Það vakti mikla athygli og er í raun hornsteinn íslenskrar skipulagsmenningar. 

Í því fjallar Guðmundur Hannesson um uppbyggingu bæja á Íslandi, greining hans á staðháttum og aðstæðum íbúanna og tillögur að skipulagi bæja eiga jafn vel við nú og þegar textinn var skrifaður fyrst fyrir 100 árum.

Guðmundur sækir viðmið í kenningar sem voru að ryðja sér til rúms erlendis við upphaf tuttugustu aldar og kváðu á um að skipuleggja skyldi bæi með tilliti til heilsu og vellíðanar íbúanna.  Hann lagði þó ávallt áherslu á að taka mið af íslenskum aðstæðum, hnattstöðu, veðUmurfari og fleiru.  Áhuga vekur að Guðmundur skuli hér fást við vandamál sem nú eru ofarlega á baugi, svo sem þéttingu byggðar, lýðheilsu, íbúðalýðræði og skipulag torga.

Sigríður Kristjánsdóttir stóð fyrir endurútgáfu bókarinnar og ritar formála.

Um skipulag bæja er skyldulesning fyrir alla sem hafa áhuga á skipulagsmálum hér á landi.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image