Vegna flutnings vélasalar Upplýsingatæknisviðs Háskóla Íslands verður hluti af tölvuþjónustu Landbúnaðarháskólans óaðgengilegur tímabundið helgina 27.–29. júní. Þetta hefur áhrif á:
- Uglu
- Greiðslukerfi, þar með talið greiðslu skráningargjalda
Niðritími:
Frá föstudegi 27. júní kl. 12:00 til sunnudagsins 29. júní kl. 23:00.
Gert er ráð fyrir að Ugla verði komin aftur í gagnið í síðasta lagi að morgni mánudagsins 30. júní, þó líklegt sé að hún verði aðgengileg töluvert fyrr.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilninginn á meðan unnið er að mikilvægu innviðaverkefni.