Sumarstörf í boði á útisvæðum Hvanneyrar og við fjárbúið að Hesti

Sumarstörf í boði

Sumarstörf í boði á útisvæðum Hvanneyrar og við fjárbúið að Hesti.

Við óskum eftir starfsfólki í garðyrkjustörf á Hvanneyri og við fjárbúið á Hesti í sumar.

Störfin felast m.a. í umhirðu og snyrtingu á gróðri, grasslætti á opnum svæðum, aðstoð við sauðburð, heyskap og umhirðu fjár eftir atvikum ásamt öðrum tilfallandi störfum. Kostur er ef umsækjandi hefur vinnuvélaréttindi (I og J réttindi) og hefur reynslu af umhirðu gróðurs og/eða umhirðu búfjár.

Vinnutíminn er frá 8:00-16:15 virka daga, frá 15. maí - 20. ágúst eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Ingi Gunnarsson í síma 845 7434 eða á netfangið hafsteinn(hjá)lbhi.is.

Umsóknir sendist á netfangið: arnag(hjá)lbhi.is merkt Sumarstarf.

Umsóknarfrestur er til 10. apríl

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image