Opnað hefur verið fyrir sumarstörf hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

Sumarstörf

Opnað hefur verið fyrir sumarstörf hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) hefur opnað fyrir umsóknir um sumarstörf. 18 ára og eldri (fæddir 2002 eða fyrr) geta sótt um. Starfsstöðvar LbhÍ eru þrjár, á Hvanneyri, á Reykjum í Ölfusi og Keldnaholti í Reykjavík. 

Helstu viðfangsefni:

  • Umhirða útisvæða
  • Umhirða / vökvun í gróðurhúsum
  • Viðhald fasteigna eða annarra innviða
  • Störf við búrekstur

Hæfniskröfur:

  • Bílpróf (kostur en ekki skilyrði)
  • Vinnuvélapróf (kostur en ekki skilyrði)
  • Reynsla af umhirðu útisvæða og/eða garðyrkjustörfum
  • Stundvísi og áreiðanleiki

Vinnutíminn er frá kl 8-16:15 virka daga, frá 15. maí – 20. ágúst.

Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum.

Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LBHÍ, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sími 433-5000 og á heimasíðu skólans www.lbhi.is/storf -

Umsóknarfrestur er til 01.05.2020 Umsóknir sendist á netfangið: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., merkt sumarstarf

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image