Störf í boði - Verkefnastjóri Landgræðsluskólans - GRÓ LRT

Störf í boði - Verkefnastjóri Landgræðsluskólans - GRÓ LRT

Landgræðsluskólinn (GRÓ LRT) óskar eftir að ráða öflugan verkefnastjóra í spennandi og fjölbreytt starf þar sem reynir á frumkvæði og lausnamiðað hugarfar. Um er að ræða fullt starf.

Landgræðsluskólinn er hýstur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og er hluti af GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem starfar undir hatti UNESCO. Markmið skólans er að þjálfa sérfræðinga sem starfa hjá stofnunum á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar í samstarfslöndum skólans í Afríku og Mið-Asíu.

Skólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og er kostaður af opinberum fjármunum utanríkisráðuneytisins til þróunarsamvinnu. Stærsta verkefni skólans ár hvert er 6 mánaða þjálfun á Íslandi fyrir starfandi fagfólk í samstarfslöndunum þar sem mikil áhersla er lögð á hagnýtingu þekkingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í skipulagi, þróun og uppbyggingu skólans

  • Vinna við framkvæmd kennslu og útskrift nemenda

  • Umsjón með verkefnavinnu nemenda í samvinnu við leiðbeinendur

  • Stuðningur og upplýsingagjöf til nemenda og kennara Landgræðsluskólans

  • Miðlun faglegra upplýsinga í töluðu og rituðu máli sem og á samfélagsmiðlum

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, gerð er krafa um meistarapróf

  • Þekking eða starfsreynsla á sérsviðum Landgræðsluskólans

  • Haldgóð reynsla af verkefnastjórnun og upplýsingamiðlun

  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

  • Reynsla af störfum innan háskólasamfélagsins er kostur

  • Jákvæðni, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni

  • Hæfni til að starfa í fjölmenningarlegu umhverfi

  • Heiðarleiki og nákvæmni í vinnubrögðum

  • Íslenskukunnátta er æskileg

 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.09.2024

 

Nánari upplýsingar veitir

Berglind Orradóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image