Störf í boði - Umsjónarmaður hveititilrauna. Mynd/ Stefan Majewski hjá Pixabay

Starfið felst m.a. í því að leggja út tilraunir á kynbótaefnivið í tveggja þrepa kynbótaverkefni og að bera ábyrgð á svipgerðargreiningum. Mynd/ Stefan Majewski hjá Pixabay

Störf í boði - Umsjónarmaður hveititilrauna

Viltu taka þátt í að kynbæta korn fyrir íslenskar aðstæður?


Um starfið

Landbúnaðarháskóli Íslands leitar að starfsmanni til að hafa umsjón með hveititilraunum. Um er að ræða kynbótaverkefni sem fjármagnað er af matvælaráðuneytinu. Starfið felst m.a. í því að leggja út tilraunir á kynbótaefnivið í tveggja þrepa kynbótaverkefni og að bera ábyrgð á svipgerðargreiningum. Verkefnið er staðsett við LbhÍ á Hvanneyri en leggja þarf út tilraunir víða um land þar sem unnið er í samstarfi við kynbótafræðing og aðra starfsmenn.

Plöntukynbótaverkefnið Vala

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að fjármagna kynbætur á byggi og hveiti fyrir íslenskar aðstæður. Verkefnið kemur í kjölfar aðgerðaráætlunar um aukna kornrækt á Íslandi. Markmiðið er að auka sjálfsnægt Íslands í korni og fæðuöryggi. Kynbótaverkefnið Vala er tveggja þrepa kynbótaverkefni þar sem niðurstöður úr innlendum korntilraunum eru notaðar til þess að reikna kynbótamat með erfðagreiningum. Gögnum er safnað af erlendum samstarfsaðilum og kynbótaeinkunn er reiknuð af kynbótafræðingi verkefnisins.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur sáðvöru og hönnun tilrauna.

  • Gagnasöfnun meðan á vaxtartímabili stendur, uppskera og úrvinnsla sýna úr tilraunareitum.

  • Eftirfylgni á tilraunastöðum á vaxtartímabili, söfnun gagna um jarðræktareiginleika og sjúkdómseinkenni hjá plöntum, og notkun varnarefna.

  • Tölfræðigreining á niðurstöðum hverrar tilraunar fyrir kynbótaverkefnið og fyrir hagaðila þegar það á við.

  • Þróun og innleiðing á sáningu tilrauna með GPS kerfi.

  • Stjórnun og viðhald á tilraunavélum og rannsóknatækjum (reitasáðvélum, reitaþreskivélum, úðunartækjum og þess háttar) auk flutnings á þeim tækjum milli landshluta.

  • Kynningar fyrir hagaðila og samstarfsaðila.

  • Samhæfing svipgerðargreiningaraðferða í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum.

  • Sinna tilfallandi verkum og starfa með nemendum og vísindamönnum í tengdum verkefnum.


Hæfniskröfur

  • BSc gráða í nytjajurta-, jarðræktarfræðum eða búvísindum, MSc gráða er kostur.

  • Grunnþekking á tölfræði með skilning á líkönum sem notuð eru í jarðræktartilraunum.

  • Geta og vilji til þess að vinna langa daga á álagstímum eins og sáningum og uppskeru.

  • Skipulagshæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum.

  • Réttindi til notkunar varnarefna.

  • Reynsla af jarðrækt og akstri dráttarvéla og vinnuvélaréttindi fyrir dráttarvélar.

  • Meiraprófsréttindi (C, BE, CE).

  • Grunnþekking í forritun í R, Python eða öðrum viðeigandi tölfræðiforritum er kostur.

  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

  • Jákvætt viðhorf til áskorana og frumkvæði.


Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2025


Nánari upplýsingar veitir

Björn Þorsteinsson, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image