Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða deildarfulltrúa framhaldsnáms á kennsluskrifstofu skólans. Viðkomandi mun m.a. hafa umsjón með framhaldsnámi (PhD og MSc) og verkefnum sem tengjast gagnagrunnum, nemendabókhaldi og miðlun upplýsinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Þjónusta og upplýsingagjöf
-
Umsjón með framhaldsnámi (PhD og MSc)
-
Samræming og samþætting kennslu í samvinnu við kennara
-
Eftirfylgni með samningum er tengjast leiðbeiningu lokaverkefna eða kennslu
-
Vinna við ýmis kerfi og gagnagrunna sem tengjast nemendabókhaldi, upplýsingamiðlun, framkvæmd kennslu, prófa og útskrift nemenda
-
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem ny¿tist í starfi, meistaragráða er skilyrði
-
Haldgóð reynsla af verkefnastjórnun og upplýsingamiðlun
-
Reynsla og þekking af notkun upplýsingakerfa og gagnagrunna
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
-
Góð samskiptahæfni
-
Heiðarleiki og nákvæmni í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Guðmunda Smáradóttir,
Sími: 4335000
Álfheiður B Marinósdóttir,
Sími: 4335000