Starf við LbhÍ: Matráður hjá Garðyrkjukóla LbhÍ á Reykjum í Ölfusi

Garðyrkjuskóli Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi leitar að matráð til starfa í mötuneyti skólans á Reykjum. Við leitum að einstaklingi sem hefur fagmennsku, lipurð í samskiptum, útsjónarsemi og framkvæmdagleði að leiðarljósi.

Starfssvið

• Daglegur rekstur mötuneytis skólans á Reykjum
• Umsjón með veitingum á námskeiðum skólans
• Innkaup fyrir mötuneytið

Menntunar- og hæfniskröfur

• Menntun sem matráður eða sambærileg menntun.
• Haldgóð reynsla af rekstri mötuneytis með hagkvæmni og gæði að leiðarljósi.
• Mikil samstarfshæfni, jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Umsóknarferli

Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Kristín Siemsen Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. merkt „Matráður“.

Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2016. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf um áramót.  Um er að ræða 70% starf.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari á Reykjum í síma 433 5000 og netfang This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.lbhi.is

Við Landbúnaðarháskóla Íslands starfa 85 starfsmenn og eru þeir staðsettir á Hvanneyri í Borgarfirði (höfuðstöðvar), Keldnaholti í Reykjavík og Reykjum í Ölfusi. Skólinn starfar bæði á framhaldsskólastigi og háskólastigi við fjölbreytta og metnaðarfulla kennslu og rannsóknir á sviði auðlinda- og náttúruvísinda.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image