Verkefnið er hluti af stærra, alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem nefnist Sustainable Resilient Coasts

Staða doktorsnema í skipulagsfræði er laus til umsóknar

Haf- og strandsvæði Íslands búa yfir mikilvægum auðlindum, náttúrugæðum og jafnframt hafa þau fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Hingað til hafa skipulagsyfirvöld ekki staðfest haf- og strandskipulag á Íslandi. Niðurstöðurnar munu hjálpa sveitarfélögum á svæðinu við að þróa tæki sem geta nýst þeim við að draga úr hagsmunaárekstrum og stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda og náttúruverndar með skipulagningu hafsins.

Staða doktorsnema við Skipulags- og hönnunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands er laus til umsóknar. Doktorsneminn mun vinna við rannsóknir á skipulagi haf- og strandsvæða á Vestfjörðum.

Verkefnið er hluti af stærra rannsóknarverkefni sem nefnist Sustainable Resilient Coasts (COAST) og er styrkt af Northern Periphery & Arctic Programme (NPA) sjóðnum. Samstarfsaðilar eru Oulu University of Applied Sciences, Finnlandi, University College Cork og Mayo County Council, Írlandi og Causeway Coast and Glens Heritage Trust, Norður-Írlandi.

Um verkefnið

Haf- og strandsvæði Íslands búa yfir mikilvægum auðlindum, náttúrugæðum og jafnframt hafa þau fjölbreytta nýtingarmöguleika. Sívaxandi samkeppni er um íslensk strandsvæði, hvort sem horft er til rýmis á landi eða sjó, s.s. fyrir matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu og afþreyingarstarfsemi, og hefur áhrif á líffræðilega fjölbreytni og innviði. Aukin starfsemi á haf- og strandsvæðum hefur ýtt undir þörfina fyrir haf- og strandsvæðaskipulag til að styðja við stefnumótun og fá betri yfirsýn.

Í skipulagslögum (nr. 123/2010) kemur landsskipulagsstefna fyrst fram. Landsskipulagsstefna 2015-2026 var fyrst sett fram sem þingsályktunartillaga og samþykkt á Alþingi árið 2016. Landsskipulagsstefnan er í fjórum meginþáttum: íslensk hálendi, byggðaáætlun, byggðarmynstur og dreifing byggðarinnar og síðast en ekki síst skipulagning hafs og stranda. Í kjölfar stefnumótunar um landsskipulag voru sett lög um skipulag haf- og strandsvæða af stjórnvöldum árið 2018 (nr. 88/2018). Hingað til hafa skipulagsyfirvöld ekki staðfest haf- og strandskipulag á Íslandi.

Niðurstöðurnar munu hjálpa sveitarfélögum á svæðinu við að þróa tæki sem geta nýst þeim við að draga úr hagsmunaárekstrum og stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda og náttúruverndar með skipulagningu hafsins. Leiðbeinendur eru Sigríður Kristjánsdóttir Ph.D. og Ragnheiður Þórarinsdóttir Ph.D. 

Doktorsneminn mun vinna með hópi íslenskra og erlendra vísindamanna. Nemanum er ætlað, í samvinnu við leiðbeinendur og aðra samstarfsaðila, að vinna að undirbúningi, framkvæmd og úrvinnslu ákveðins hluta rannsóknarinnar. Einnig er mikilvægt að neminn þrói sínar eigin rannsóknarspurningar innan ramma þessarar rannsóknar.

Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið MS gráðu í skipulagsfræði. Umsækjendur þurfa að hafa góð tök á enskri og íslenskri tungu í töluðu og rituðu máli. Nemandi þarf að geta unnið sjálfstætt og með öðrum. Góð tölfræðikunnátta og ritverk sem birst hafa á ritrýndum vettvangi teljast umsækjendum til tekna. Umsóknir Umsókninni skal fylgja stutt kynningarbréf þar sem fram kemur hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu og hvað hann hefur fram að færa við mótun og vinnslu þess.

Til viðbótar skal fylgja:

i) ferilskrá,
ii) afrit af prófskírteinum (grunnnám og meistaranám),
iii) tvö umsagnarbréf og upplýsingar um hvernig má hafa samband við umsagnaraðila.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til Guðmundu Smáradóttur, mannauðs- og gæðastjóra LbhÍ (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) fyrir 1. maí 2020.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image