Verðlaunahafar á Skeifudeginum. F.v. Björn Ingi Ólafsson, Elínborg Árnadóttir, Helga Rún Jóhannsdóttir, Steindóra Ólöf Haraldsdóttir og Laufey Rún Sveinsdóttir skeifuhafi.

Skeifudagurinn 2021

Skeifudagurinn var haldinn hátíðlegur í ár en vegna samkomutakmarkanna var honum streymt á vefnum. Skeifudagurinn á sér langa sögu en Morgunblaðsskeifan var fyrst veitt við skólaslit Bændaskólans á Hvanneyri þann fjórða maí 1957. Vildi Morgunblaðið með þessu framtaki sýna hug sinn til þessarar fornu og fögru íþróttar, hestamennskunnar.

Skeifudagurinn er sannkölluð uppskeruhátíð nemenda í reiðmennskuáföngum skólans og sýna nemendur afrakstur vetrarins á tamningu og þjálfun tveggja hrossa. Þá eru veitt þar verðlaun auk Morgunblaðsskeifunnar, Gunnarsbikarinn, sem fer til þess nemenda sem fær hæstu einkunn í fjórgangskeppni, ásetuverðlaun Félags tamningamanna, Framfaraverðlaun Reynis. Morgunblaðskeifan sem fer til þess nemenda sem hlýtur hæstu meðaleinkunn úr verklegum reiðmennskuprófum. Morgunblaðsskeifan hefur verið veitt árlega síðan 1957, en mikill heiður þykir að hljóta Skeifuna og hafa sumir handhafar hennar seinna meir orðið einhverjir ástsælustu hestamenn landsins.

Dagurinn hófst með opnunaratriði þar sem nemendur ásamt kennara sínum Randi Holaker riðu fánareið og síðan flutti Eyjólfur Kristinn Örnólfsson brautarstjóri búfræðibrautar ávarp. Þá sýndu nemendur tryppin sem þau hafa tamið í vetur. Að lokinni þeirri sýningu var keppt um Gunnarsbikar þar sem nemendur riðu reiðhrossum sínum í fjórgangskeppni. Að lokinni þeirri keppni flutti formaður Grana Steindóra Ólöf Haraldsóttir ávarp og voru svo veitt verðlaun dagsins. Þau veittu Randi Holaker reiðkennari og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson brautarstjóri. Dagskránni lauk svo með ávarpi Ragnheiðar I. Þórarinsdóttur rektors. Þulur var Þráinn Ingólfsson sem leiddi okkur í gegnum dagskrána.

Morgunblaðsskeifan

Morgunblaðsskeifan var fyrst veitt við skólaslit Bændaskólans á Hvanneyri 4. maí 1957. Vildi Morgunblaðið með þessu framtaki sýna hug sinn til þessarar fornu og fögru íþróttar, hestamennskunnar. Morgunblaðsskeifan nú er veitt þeim nemanda sem náð hefur bestum samanlögðum árangri í frumtamningaprófi og í reiðmennskuhluta knapamerkis III.

  1. sæti Laufey Rún Sveinsdóttir með einkunina 9,1
  2. sæti Steindóra Ólöf Haraldsdóttir með einkunina 8,9
  3. sæti Helga Rún Jóhannsdóttir með einkunina 8,5
  4. sæti Elínborg Árnadóttir með einkunina 8,4
  5. sæti Björn Ingi Ólafsson með einkunina 8,3

Gunnarsbikar

Gunnarsbikarinn sem hefur verið veittur síðan 2008 og er gefinn af Bændasamtökum Íslands til minningar um Gunnar Bjarnason, fyrrum hrossaræktarráðunaut og kennara á Hvanneyri. Gunnar sýndi mikið frumkvæði í starfi sínu sem reiðkennari og var fyrstur til að kenna nemendum sínum að temja hesta sér til reiðar. Hefur slík kennsla haldist nær óslitin síðan. Úrslit voru þessi:

  1. sæti Helga Rún Jóhannsdóttir
  2. sæti Steindóra Ólöf Haraldsdóttir
  3. sæti Sverrir Geir Guðmundsson
  4. sæti Laufey Rún Sveinsdóttir
  5. sæti Elínborg Árnadóttir
  6. Björn Ingi Ólafsson 

Eiðfaxabikarinn

Eiðfaxabikarinn hefur verið veittur síðan 1978. Hann er veittur þeim nemenda sem hlýtur bestu einkunn í bóklegum áfanga og hlaut hann í ár Elínborg Árnadóttir.

Ásetuverðlaun FT

Félag tamningamanna hefur veitt ásetuverðlaun frá árinu 1971 og hlýtur þau sá nemandi sem þykir sitja hest sinn best. Ásetan skal vera falleg og notuð til að stjórna hestinum. Þau hlaut Steindóra Ólöf Haraldsdóttir.

Framfarabikar Reynis

Verðlaunin hafa verið veitt síðan 2013 þeim nemenda sem hefur sýnt hvað mestan áhuga, ástundun og tekið hvað mestum framförum í reiðmennsku II, sem saman stendur af knapamerki III og frumtamningaráfanga. Þessi bikar er gjöf Hestamannafélagsins Grana til minningar um Reyni Aðalsteinsson og alla þá frábæru hluti sem hann gerði fyrir hestamennsku á Hvanneyri og víðar. Verðlaunin í ár hlaut Björn Ingi Ólafsson.

Við óskum öllum innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir veturinn.

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image