Hópurinn stillir sér upp eftir kynningu á LbhÍ

Sjálfbær landnýting og bætt landgæði

Kynnt voru störf og verkefni frá landbúnaðarháskólanum í Mongólíu.
Áhugavert er að heyra um áskoranir í landnýtingu og landvernd Í Mongólíu.

Hjá okkur hafa dvalið sérfræðingar frá Mongólíu og unnið með okkar sérfræðingum ásamt starfsfólki Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu Þjóðanna. Hópurinn fundaði og vann á Hvanneyri þessa vikuna og kynnti sína vinnu fyrir nemendum og starfsfólki skólans. 

Í Mongólíu er stór hluti þjóðarinnar hirðingjar. Stóraukin búfjárbeit og námuvinnsla hafa aukið álag á beitilönd í Mongólíu á síðustu áratugum, auk þess sem loftslagsbreytingar hafa aukið á vandann. Lífsviðurværi hirðingjanna er í hættu og finna þarf nýjar leiðir til að bæta lífsafkomu þeirra á sama tíma og landið er nýtt á sjálfbæran hátt og landgæði bætt.

Föstudaginn 15.mars verður opin málstofa í sal Þjóðminjasafns Íslands kl 12 -13 

Á málstofunni mun Dr. Bulgamaa Densambuu, virtur vistfræðingur í Mið-Asíu, fjalla um leiðir til að bæta landgæði og lífsafkomu mongólskra hirðingja. Bulgamaa hefur stundað rannsóknir og ráðgjöf í tengslum við sjálfbæra landnýtingu og landgræðslu í Mongólíu til fjölda ára. Í starfi sínu hefur hún unnið náið með hirðingjum sem byggja afkomu sína á landinu. Bulgamaa stundaði nám hér á landi árið 2007 í Landgræðsluskólanum.

Hér er linkur á viðburðinn

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image