Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskólans og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra handsala samkomulagið. Ljósm. DL.

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskólans og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra handsala samkomulagið.

Samkomulag undirritað um kynbótaverkefni á byggi

Samstarf Landbúnaðarháskóla Íslands og matvælaráðuneytisins

Samstarf Landbúnaðarháskóla Íslands og matvælaráðuneytisins hefur verið margþætt að undanförnu og má þar fyrst nefna aðgerðaáætlun um aukna kornrækt sem kom út í skýrslunni Bleikir Akrar á dögunum, sem lagði grunninn að stuðningi við íslenska kornrækt sem fram kemur í Fjármálaáætlun 2024-2028 og í gær var undirritaður samningur um stuðning matvælaráðuneytisins við kynbætur í korni sem er forsenda framþróunar.

Undirritun samningsins eru því mikil gleðitíðindi fyrir íslenskan landbúnað og styður enn frekar við uppbyggingu jarðræktarstarfs Landbúnaðarháskóla Íslands.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í gær samkomulag við Landbúnaðarháskóla Íslands um framkvæmd kynbótaverkefnis á byggi til ræktunar á Íslandi. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor undirritaði samkomulagið fyrir hönd Landbúnaðarháskólans sem gildir til eins árs. 

Tækni í plöntukynbótum hefur fleygt fram á ljóshraða og við viljum nýta okkur þá möguleika til að hraða erfðaframförum svo um munar. Búvísindafólk við Landbúnaðarháskólann mun, í samstarfi við erlenda sérfræðinga, nýta erfðavísindin til að aðlaga bygg og hveiti að íslenskum aðstæðum hraðar en nokkurn óraði fyrir að væri gerlegt fyrir fáum árum,“ sagði matvælaráðherra við þetta tilefni. Frétt um efnið á vef stjórnarráðsins.

Jarðræktarhópur Landbúnaðarháskóla Íslands hefur eflst mjög á undanförnum árum

Teymið hefur sótt fjármagn í samkeppnissjóði fyrir kaupum á nýjum tækjabúnaði og samhliða hafa rannsóknir og alþjóðlegt samstarf aukist í greininni. Samstarf við bændur er mikilvægur þáttur í starfseminni og með stuðningi matvælaráðherra við íslenska kornrækt eru stór skref stigin í átt að aukinni framleiðslu til framtíðar.

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image