Dr. Björn Þorsteinsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ), hefur óskað eftir lausn frá starfi sem rektor af persónulegum ástæðum, og hverfa aftur til prófessorstarfa innan skólans. Háskólaráð LbhÍ mun í kjölfarið undirbúa auglýsingu um ráðningu nýs rektors í samstarfi við menntamálaráðuneytið. Fram að því mun Björn gegna starfinu.
Björn hefur starfað sem rektor LbhÍ frá 1. ágúst 2014 þegar hann var settur í starfið með stuttum fyrirvara. Megin verkefni sem þá biðu voru að snúa við hallarekstri skólans sem var orðinn mjög skuldugur við ríkissjóð. Viðsnúningur í rekstri hefur skilað afgangi síðastliðin tvö ár og vel hefur gengið að niðurgreiða skuldir skólans við ríkissjóð. Þessi niðurstaða og ákvörðun alþingis í kjölfarið um afskriftir skulda munu ef allar áætlanir ganga eftir, skila skuldlausum skóla í árslok 2017. Það eru því bjartir tímar framundan hjá Landbúnaðarháskólanum og nýr rektor mun taka við góðu búi.