Endurmenntun - tvö námskeið með Oscari Murguia fjárhundatemjara

Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa fólk fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.

Markmið námskeiðsins er að kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Stærstur hluti námskeiðsins er verkleg þjálfun með hundi sem fer fram í reiðhöll og úti við ef aðstæður leyfa. Bókleg kennsla er einnig til staðar eftir sem þörf er á. Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð.

Mikilvægt er að hundar á námskeiðinu séu byrjaðir í tamningu með kindum og kunni að hlýða frumskipunum til að námskeiðið nýtist sem best. Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi.

NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Fimmtudaginn 20. feb. og föstudaginn 21. feb. kl. 9-17 (með eða án hunds)
Laugardaginn 22. feb. og sunnudaginn 23. feb. kl. 9-17 (með eða án hunds)

KENNARI
Kennari á námskeiðinu er Oscar Murgui viðurkenndur fjárhundatemjari frá Baskahéraðinu á Spáni. Oscar hefur 11 sinnum orðið spænskur meistari í ABCA deildinni (American Border Collie Association) og unnið CAtPE meistaramót fjárhunda á Spáni þau þrjú ár sem það hefur verið haldið, 2022, 2023 og 2024. Því til viðbótar hefur hann 6 sinnum tekið þátt á EM og þar af fjórum sinnum komist í úrslit árin 2018, 2019, 2022 og 2024 og þrisvar tekið þátt á Heimsmeistaramótinu og komist í úrslit 2017 og 2023. Oscar hefur hlotið fleiri nafnbótir sem fjárhundatemjari meðal annars sem World team reserve champion árið 2023. Oscar rekur hundþjálfunarmiðstöðina Murguía Border Collie og er stofnandi ABCA sem er félag Bordier collie vinnuhunda, og CAtPE sem er spænskt meistaramót fjárhunda.

Oscar mætir með aðstoðarmann með sér sem mun vera honum til taks við að þýða yfir á ensku þegar á þarf að halda.  

KENNSLUFYRIRKOMULAG
Um er að ræða tveggja daga námskeið frá kl. 9-17 sem haldið er í glæsilegri hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum í Borgarfirði, sjá leiðavísi hér

VERÐ
65.000 kr. með hundi – innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffiveitingar báða daga
32.000 kr. án hunds – innifalið í verði er að fylgjast með kennslunni báða daga, hádegisverður og kaffiveitingar

Skráning og nánari upplýsingar: https://endurmenntun.lbhi.is/fjarhundanamskeid/

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image