Opið fyrir umsóknir í nám við LbhÍ

Nú er opið fyrir umsóknir í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Skólinn hefur mikla sérstöðu meðal íslenskra háskóla og býður upp á nám sem ekki er í boði í öðrum háskólum landsins. Vertu með - sæktu um hér!

Boðið er upp nám á eftirfarandi háskólabrautum (BS/MS). Kennt er á Hvanneyri. Hægt er að leigja húsnæði af nemendagörðum LbhÍ á Hvanneyri, frá einu herbergi upp í fjögra herbergja íbúðir.

- Umhverfisskipulag
- Skógfræði
- Náttúru- og umhverfisfræði
- Búvísindi

Meistaranám á ofantöldum brautum er einstaklingsmiðað, tvö ár (120 ECTS) með 30-60 ECTS rannsóknaverkefni.

Meistaranám í skipulagsfræði er kennt á Keldnaholti í Reykjavík og er tveggja ára starfsmiðað meistaranám með 30 ECTS rannsóknaverkefni.

Á Reykjum við Hveragerði eru eftirfarandi námleiðir í boði:
Blómaskreytingar
Garðyrkjuframleiðsla
Skógur og náttúra
Skrúðgarðyrkja
Allar brautir eru til þriggja ára og eru á framahaldsskólastigi, bæði verklegt og bóklegt. Fjarnám er í boði.

Búfræði er tveggja ára nám í framhaldsskólastigi, bæði verklegt og bóklegt. Fjarnám er í boði. Kennt er á Hvanneyri.

Reiðmaðurinn er námskeiðaröð í endurmenntunardeild LbhÍ. Reiðmaðurinn er tveggja ára nám og er á framhaldsskólastigi. Námið er sambland af staðar- og fjarnámi.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image