Opið er fyrir umsóknir í Blikastaðasjóð

Opið fyrir umsóknir í Blikastaðasjóð

Hlutverk sjóðsins er að styrkja nemendur sem lokið hafa háskólanámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis eða til rannsókna í landbúnaðarvísindum eftir því sem stjórn sjóðsins ákveður. Einnig er stjórn sjóðsins heimilt að verðlauna nemendur Landbúnaðarháskólans fyrir framúrskarandi árangur á burtfararprófi.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. og skal senda umsóknir á netfangið blikastadasjodur@lbhi.is.

Í umsókn skulu koma fram eftirtalin atriði:

  • Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang
  • Náms- og starfsferill umsækjanda
  • Meðmæli
  • Heiti verkefnis og stutt hnitmiðuð lýsing á verkefninu, sem nýta má til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk
  • Tímaáætlun verkefnis

Styrkúthlutun mun fara fram við skólaslit Landbúnaðarháskóla Íslands þann 4. júní nk.

Stjórn Blikastaðasjóðs

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

Image
Image
Image