Opið fyrir umsóknir í Blikastaðasjóð 2024

Opið fyrir umsóknir í Blikastaðasjóð 2024

Hlutverk sjóðsins er að styrkja nemendur sem lokið hafa háskólanámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis eða til rannsókna í landbúnaðarvísindum eftir því sem stjórn sjóðsins ákveður. Einnig er stjórn sjóðsins heimilt að verðlauna nemendur Landbúnaðarháskólans fyrir framúrskarandi árangur á burtfararprófi.

Umsóknarfrestur er til 29. apríl nk. og skal senda umsóknir á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Í umsókn skulu koma fram eftirtalin atriði:

  1. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang
  2. Náms- og starfsferill umsækjanda
  3. Meðmæli
  4. Heiti verkefnis og stutt hnitmiðuð lýsing á verkefninu, sem nýta má til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk
  5. Tímaáætlun verkefnis

Styrkúthlutun mun fara fram við skólaslit Landbúnaðarháskóla Íslands þann 31. maí 2024.

Stjórn Blikastaðasjóðs

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image