Hlutverk sjóðsins er að styrkja nemendur sem lokið hafa háskólanámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis eða til rannsókna í landbúnaðarvísindum eftir því sem stjórn sjóðsins ákveður.
Einnig er stjórn sjóðsins heimilt að verðlauna nemendur Landbúnaðarháskólans fyrir framúrskarandi árangur á burtfararprófi.
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2023 og skal senda umsóknir á netfangið
Í umsókn skulu koma fram eftirtalin atriði:
- i. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang
- ii. Náms- og starfsferill umsækjanda
- iii. Meðmæli
- iv. Heiti verkefnis og stutt hnitmiðuð lýsing á verkefninu, sem nýta má til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk
- v. Tímaáætlun verkefnis
Styrkúthlutun mun fara fram við skólaslit Landbúnaðarháskóla Íslands þann 2. júní nk.
Stjórn Blikastaðasjóðs