Blikastaðasjóður styrkir nemendur sem lokið hafa grunnnámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis eða til rannsókna í landbúnaðarvísindum.

Opið fyrir umsóknir í Blikastaðasjóð

Hlutverk sjóðsins er að styrkja nemendur sem lokið hafa háskólanámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis eða til rannsókna í landbúnaðarvísindum eftir því sem stjórn sjóðsins ákveður. Einnig er stjórn sjóðsins heimilt að verðlauna nemendur Landbúnaðarháskólans fyrir framúrskarandi árangur á burtfararprófi.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. og skal senda umsóknir á netfangið blikastadasjodur@lbhi.is.

Í umsókn skulu koma fram eftirtalin atriði:

i. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang
ii. Náms- og starfsferill umsækjanda
iii. Meðmæli
iv. Heiti verkefnis og stutt hnitmiðuð lýsing á verkefninu, sem nýta má til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk
v. Tímaáætlun verkefnis

Styrkúthlutun mun fara fram við skólaslit Landbúnaðarháskóla Íslands þann 5. júní nk.

Stjórn Blikastaðasjóðs

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

Image
Image
Image