Nýr hópur í Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna

Um miðjan mars hóf nýr hópur nám í árlegu 6-mánaða námi í landgræðslu og sjálfbærri landnýtingu við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Að Landgræðsluskólanum standa Landbúnaðarháskóli Íslands, Landgræðsla ríkisins, utanríkisráðueytnið og Háskóli Sameinuðu þjóðanna.

Hópurinn í ár er sá stærsti frá upphafi og aldrei hafa nemendur komið frá jafn mörgum löndum en alls eru þetta 14 manns frá átta löndum. Að þessu sinni koma nemarnir frá Eþíópíu, Ghana, Lesótó, Malaví, Mongólíu, Níger, Úganda og Úsbekistan. Mestur hluti kennslunnar fer fram í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti en nemarnir dvelja einnig drjúgan hluta sumarsins í höfuðstöðvum Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti á Rangárvöllum.

Nemar Landgræðsluskólans koma frá  þróunarlöndum sem standa frammi fyrir landeyðingu og eyðimerkurmyndun. Þau eru öll starfsmenn samstarfsstofnana Landgræðsluskólans í heimalöndum sínum þar sem þau vinna að landgræðslu, umhverfisstjórnun og/eða sjálfbærri landnýtingu. Samstarfsstofnanir Landgræðsluskólans eru einkum ráðuneyti, umhverfisstofnanir og héraðsstjórnir, en einnig háskólar og aðrar rannsóknarstofnanir. Náminu líkur með kynningu á rannsóknarverkefnum sem nemarnir vinna að á meðan þau dvelja hér á landi. Sex mánaða námið er fjármagnað af utanríkisráðuneytinu og er hluti af þróunarsamvinnu Íslands sem er ein grunnstoðin í utanríkisstefnu Íslands.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image