Ásdís Hlökk Theodórsdóttir hefur verið ráðin sem aðjúnkt við námsbraut í skipulagsfræði. Ásdís Hlökk er með MPhil gráðu í skipulagsfræði frá háskólanum í Reading, Englandi og BSc gráðu í landfræði frá Háskóla Íslands. Hún er jafnframt í doktorsnámi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
Ásdís Hlökk hefur starfað að skipulagsmálum í yfir þrjá áratugi. Hún var forstjóri Skipulagsstofnunar 2013-2022, en hefur undanfarin ár starfað sem aðjúnkt við námsbraut í land- og ferðamálafræði við HÍ. Áður hefur hún einnig fengist meðal annars við skipulagsráðgjöf hjá Alta ráðgjöf og kennslu og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík.
„Við þurfum hæft og gott fólk til að höndla með framtíðarskipulag borgar, bæja, dreifbýlis, óbyggða og hafsvæða. Það er gaman að fá tækifæri til að taka þátt í að þróa skipulagsfræðinámið við LbhÍ og sinna kennslu og þekkingarsköpun á þessu mikilvæga sviði.“
Ásdís Hlökk hóf störf nú í byrjun júní og er með aðsetur á Keldnaholti. Við bjóðum Ásdísi Hlökk innilega velkomna til starfa!