Fyrsti dagur nemenda garðyrkjubrauta við LbhÍ var 27.ágúst og að venju var farið með nemendur í dagsferð til að hrista hópinn saman. Ferðinni var heitið í Múlakot en þar hefur skólinn komið að endurbyggingu gamla garðsins en hann, ásamt húsakosti í Múlakoti, hefur verið friðaður og kominn inn í sjálfseignarstofnun. Garðyrkjunemendur tóku til hendinni, hellulögðu, lögðu torf og bjuggu til blómabeð undir dyggri stjórn húsráðenda, þeirra Sigríðar Hjartar og Stefáns Guðbergssonar. Veðrið lék við nemendur og starfsmenn þrátt fyrir hörmulega veðurspá. Heimamenn í Fljótshlíð buðu upp á ljúffenga grænmetissúpu í hádeginu og var það vel þegið. Eftir heimsóknina í Múlakot var komið við á Tumastöðum þar sem Hrafn Óskarsson tók á móti hópnum og sagði frá starfseminni þar.
Á þriðjudeginum hófst svo kennsla á Reykjum þar sem farið var yfir tæknileg mál og starf vertrarins kynnt.