Námsstefna um uppbyggingu ferðamannastaða - skipulag, hönnun og framkvæmdir á ferðamannastöðum

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands stendur fyrir námstefnu ætlaða þeim sem koma að skipulagi, hönnun, framkvæmdum og umsjón ferðamannastaða, þeirra á meðal fulltrúum sveitarfélaga, landeigendum, verktökum, arkitektum, skipulagsfræðingum og áhugamannafélögum. Námstefnan er haldin þriðjudaginn 20. apríl kl. 10-15 í samstarfi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Byggðaáætlun og Austurbrú.

Á námsstefnunni verður fjallað um skipulags- og undirbúningsvinnu sem þarf að liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast, meðal annars skráningar fornleifa og menningarminja, leyfisveitingar, öryggismál og  fjármögnun verkefna. Einnig segja sérfræðingar frá því hvernig skipulags- og hönnunarferli er frá hugmynd til veruleika með það fyrir augum að innviðauppbygging byggist á fagmennsku og vönduðum undirbúningi svo hún hafi ekki í för með sér röskun á náttúru og menningarminjum. Kynning verður á nýju merkingarkerfi á ferðamannastöðum og friðlýstum svæðumog fjallað um gerð náttúrustíga, hönnun og uppbyggingu.

Fyrirlesarar eru Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir verkefnastjóri Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða hjá Ferðamálastofu, Gunnar Óli Guðjónsson landslagsarkitekt, Hrólfur Karl Cela arkitekt og meðeigandi Basalts, Hörður Lárusson eigandi Kolofon, Sigbjörn Kjartansson arkitekt hjá Gláma-Kím, Sólrún Inga Traustadóttir fornleifafræðingur hjá Minjastofnun, Uggi Ævarsson minjavörður hjá Minjastofnun og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi.

Námsstefnustjóri er Anna María Bogadóttir arkitekt, Úrbanistan.

Námsstefnan fer fram hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík en jafnframt verður boðið upp á streymi og linkur sendur á þátttakendur deginum áður. 

Skráning og nánari upplýsingar er að finna á vef Endurmenntunar LBHÍ

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image