Háskóladagurinn gekk vel og margir áhugasamir lögðu leið sína á Háskólatorg og skoða hvað háskólar landsins hafa uppá að bjóða

Mikill áhugi á námi okkar á Háskóladeginum

Fjölbreytt nám er í boði við skólann.
Fylgdu þínu áhugasviði og finndu þinn metnað.

Mikill áhugi og góð stemmning var á Háskóladeginum þar sem allir háskólar landsins koma saman og kynna sitt nám og bjóða fólki að koma og skoða.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir komandi skólaár og hægt að skoða nánar námsframboð okkar hér. Við sérhæfum okkur á sviði verndunar, viðhalds og nýtingar náttúru íslands í víðum skilningi og því sem á henni lifir. Við stöndum fyrir sjálfbærni, hagsæld og framsækni í okkar nálgun.

Framundan eru gríðarlegar áskoranir í umhverfismálum og matvælaframleiðslu. Hnattrænar loftlagsbreytingar ógna landbúnaði um allan heim og munu gera framleiðslu matvæla erfiðari. Þetta kallar á að við hlúum að landbúnaði hér á landi og LbhÍ gegnir lykilhlutverki að þjálfa upp mannauð sem mun fá það hlutverk að glíma við þessar breytingar.

LbhÍ vill efla nýsköpun, rannsóknir og kennslu á öllum fræðasviðum skólans sem eru landbúnaður, garðyrkja, landgræðsla, umhverfisvísindi og landskipulag. Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda á landi eru okkur mikið kappsmál og að efla atvinnugreinar á sviði skólans með tækniframförum og stefnumótun. 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image