Laust er til umsóknar starf lektors í umhverfisfræðummeð áherslu á sjálfbæra landnýtingu við deild Náttúru og skóga hjá LbhÍ

Lektor í umhverfisfræðum

Laust er til umsóknar 100% starf lektors í umhverfisfræðum með áherslu á sjálfbæra landnýtingu við deild Náttúru og skóga hjá LbhÍ. ---english below---

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Byggja upp alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sérsviði sínu, birta ritrýndar vísindagreinar, afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í alþjóðlegu og innlendu samstarfi.
  • Leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum og kenna námskeið á grunn- og framhaldsstigi. Lektor hefur tækifæri til að þróa námskeið í grunn- og framhaldsnámi.
  • Taka virkan þátt í störfum deildar eftir því sem þörf krefur.

Hæfnikröfur

  • Doktorspróf í plöntuvistfræði, vistkerfisfræði, vistfræði landnýtingar, vistþjónustu, jarðvegsfræði eða öðrum greinum er nýtast við starfið.
  • Góð tölfræðikunnátta og geta til að vinna úr viðamiklum gögnum er kostur.
  • Þekking og reynsla af rannsóknum er tengjast sjálfbærni og landnýtingu, þ.m.t. af notkun landupplýsingakerfa, er æskileg.
  • Umsækjandi hafi kynnt rannsóknir sínar á viðurkenndum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn í þeim efnum.
  • Reynsla af kennslu og geta og vilji til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu.
  • Aðild að rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknastyrkja í samvinnu við aðra.
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum.
  • Íslenskukunnátta er æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Upphafleg ráðning verður til fimm ára í samræmi við lög um opinbera háskóla nr. 85/2008. Að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um framhaldið.

Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og eigi síðar en 1. janúar, 2021.

Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum LbhÍ er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu ef umsækjandi uppfyllir viðkomandi hæfnisviðmið.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands frá 20. september 2012.

Meginstarfsstöðvar LbhÍ eru þrjár: að Hvanneyri í Borgarfirði, á Keldnaholti í Reykjavík og að Reykjum í Ölfusi. Kennsla sú sem fellur undir umrætt starf fer fram að Hvanneyri og/eða Keldnaholti. Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert. Starfshlutfall er 100%

Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Isabel C Barrio, deildarforseta Náttúra og skógur í síma 8693876 eða með tölvupósti (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.)

Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2020

Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Guðmunda Smáradóttir Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið, kynningarbréf þar sem m.a. koma fram upplýsingar um samskiptahæfni umsækjanda, rannsóknaráherslur og hugmyndir um kennsluaðferðir/þróun þekkingarmiðlunar á sviðinu. Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Sótt er um starfið gegnum ráðningarkerfi ríkisins hér

------

Assistant Professor (tenure-track) in Environmental Sciences at the Faculty of Environmental and Forest Sciences, Agricultural University of Iceland

The Faculty of Envrionmental and Forest Sciences at the Agricultural University of Iceland seeks applicants to fill a full-time tenure-track position as Assistant Professor in the field of environmental sciences.

Expectations:

  • establish internationally recognized research in his/her field of expertise, secure research funding and participate in domestic and international reserch projects.
  • teach established underagraduate and graduate courses, supervise graduate students and, if relevant, develop his/her own undergraduate and graduate courses.
  • participate in the faculty‘s administrative work as relevant.

Requirements:

  • PhD in plant ecology, ecosystem ecology, soil ecology, environmental sciences or related fields.
  • Good knowledge of statistics and/or handling of large data sets is desirable.
  • Research experience related to sustainable land use, including use of Geographic Information Systems (GIS), is an advantage.
  • Track record of publishing his/her research in acknowledged fora and a clear vision of future research
  • Experience with teaching and/or knowledge transfer and the will and ability to develop new approaches in this regard.
  • Participation in research projects and experience in securing research funds, individually or in collaboration with others.
  • Excellent collaboration and communication skills.
  • Management experience and ability to understand and speak Icelandic is a bonus.

The initial appointment will be for five years in accordance with the Act on Public Universities No. 85/2008. According to regulations of the Agricultural University of Iceland the rector is permitted to grant a promotion to the position of Associate or Full Professor immediately following a new recruitment, should the appointee fulfil required qualifications. The evaluation of the application and academic merits will be in accordance with the Act on Public Universities No. 85/2008 and regulations on recruitment and promotion of academic staff at the Agricultural University of Iceland from 20 September 2012.

The work will commence on 1st of January 2021 or as agreed between the appointee and the university.

Salary is in accordance with the current collective wage and salary agreement between the relevant union, and the Minister of Finance. Rights and obligations otherwise follow the Act 70/1996 on the Rights and Obligations of Civil Servants.

The Agricultural University has three main sites of operation: Hvanneyri, Keldnaholt and Reykir. Teaching obligations for the current position will be carried out at Hvanneyri.

For further information contact Isabel C Barrio, Vice-Dean of the Faculty of Environmental and Forest Sciences (telephone +354-8693876 or email: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.).

The deadline for applications is 10 of August 2020.

Applications should be sent to the Agricultural University of Iceland, preferably in electronic format, C/O Guðmunda Smáradóttir (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.), Ásgarði, IS-311 Hvanneyri, Iceland. The application shall include certificates attesting to education and work experience, a list of publications, a summary of previous working experience (scholarly and other) and a letter of introduction, stating research interests and future ideas regarding teaching and knowledge transfer in the field of environmental sciences.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image