Laust er til umsóknar 100% starf lektors í skógfræði við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands með áherslu á ræktun skóga og tengingu við sjálfbæra landnýtingu. Viðkomandi er ætlað að styrkja núverandi starf deildar á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu við samfélagið.
Hlutverk deildarinnar er að byggja brú á milli náttúru og samfélags með rannsóknum, kennslu, þjálfun og ráðgjöf á sviði sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar vistkerfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði skógfræði
 - Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
 - Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
 - Leiðbeining nemenda í rannsóknarverkefnum
 
- Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans
 
Hæfniskröfur
- Doktorspróf í skógfræði eða skyldum greinum
 - Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum innlendum og erlendum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á rannsóknum og þróun fræðasviðsins
 - Reynsla af kennslu og áhugi til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
 
- Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja
 - Reynsla af rannsóknum og þróun er tengjast skógfræði, sjálfbærni og landnýtingu
 - Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
 - Íslenskukunnátta er æskileg
 
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.04.2022
Nánari upplýsingar veitir
- Isabel Pilar Catalan Barrio, deildarforseti - 
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - 433 5000 - Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri - 
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - 433 5000 


 


