Starfsstöðvar Landbúnaðarháskóla Íslands eru þrjár, á Hvanneyri, Reykjum í Ölfusi og á Keldnaholti í Reykjavík.

Laus störf - Rekstrarstjóri fasteigna

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir að ráða rekstrarstjóra fasteigna skólans. Rekstur fasteigna heyrir undir rekstrarsvið skólans. Starfsstöðvar Landbúnaðarháskóla Íslands eru á Hvanneyri, Reykjum í Ölfusi og á Keldnaholti í Reykjavík. Fasteignir skólans eru í kringum þrjátíu talsins og eru flestar leigðar af Ríkiseignum. Starfið felst í umsjón með almennu viðhaldi og rekstri húsnæðis háskólans, þar með talið Nemendagörðum sem staðsettir eru á Hvanneyri.

Starfssvið

  • Rekstur og umsjón með almennu viðhaldi fasteigna
  • Samskipti við Ríkiseignir
  • Útboðs- og samningagerð Áætlanagerð
  • Kostnaðarstýring
  • Samningar við verktaka
  • Öryggismál

Menntunar- og Hæfniskröfur

  • Viðeigandi iðnmenntun, meistararéttindi  æskileg
  • Háskólapróf í verkfræði, tæknifræði eða skyldum greinum æskilegt
  • Reynsla af skipulagningu og stjórnun byggingarekstrar og viðhaldsverkefna
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæði
  • Frumkvæði
  • Þjónustulund

Miðað er við að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en 1. janúar 2021.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%  

Umsóknarfrestur er til og með 4.09.2020

Nánari Upplýsingar veita Theodóra Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 433 5000
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 6977292

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image