Laus er staða fjósameistara á Hvanneyri

Laus störf - Fjósameistari á Hvanneyri

Starf fjósameistara Hvanneyrarbúsins ehf við Landbúnaðarháskóla Íslands er nú laust til umsóknar

Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum. Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af teymi Landbúnaðarháskólans sem hefur umsjón með rekstri Hvanneyrarbúsins í samráði við bústjóra. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni

  • Umsjón og rekstur fjóssins á Hvanneyri
  • Fóðrun og dagleg umhirða gripa Umsjón ræktunarstefnu og hjarðskýrsluhalds
  • Almennt viðhald og viðgerðir véla og tækja
  • Jarðvinnsla og heyskapur
  • Leiðbeining nemenda í verklegu námi í búfræði og móttaka gesta
  • Virk þátttaka í uppbyggingu og innleiðingu nýsköpunar í búrekstri
  • Samstarf við teymi kennara og sérfræðinga Landbúnaðarháskóla Íslands við verklega kennslu og rannsóknir í nautgriparækt, jarðrækt, bútækni og umhverfismálum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Búfræðipróf og/eða BS próf í búvísindum, auk annarrar menntunar sem nýtist í starfi
  • Reynsla af hirðingu búfjár og vélavinnu
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku

Umsóknarfrestur er til 10. mars 2020

Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og helst eigi síðar en 15. maí 2020.

Tilgangur Hvanneyrarbúsins ehf er að reka á hagkvæman hátt kúabú í þágu kennslu og rannsókna Landbúnaðarháskóla Íslands. Áhöfn er um 70 kýr auk geldneyta og ársframleiðsla mjólkur er um 550.000 lítrar.

Nánari upplýsingar

Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri veitir nánari upplýsingar, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  sími 433-5000 og á heimasíðu skólans hér.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image