Landsýn - vísindaþing landbúnaðarins 2014

Ráðstefnan Landsýn – vísindaþing landbúnaðarins verður haldin á Hvanneyri í Borgarfirði föstudaginn 7. mars 2014. Ráðstefnan verður með svipuðu sniði og í mars síðastliðnum. Formlegir aðstandendur ráðstefnunnar eru MAST, Veiðimálastofnun, Landgræðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins, Hólaskóli og Landbúnaðarháskóli Íslands.

SKRÁNING HÉR 

Öllum er velkomið að koma með tillögur um erindi eða veggspjöld og að sjálfsögðu einnig að mæta taka þátt í ráðstefnunni. Auglýst var eftir hugmyndum að málstofum fyrir ráðstefnuna í október og urðu þessar málstofur fyrir valinu:

Landlæsi

Skógrækt á rofnu landi

Velferð dýra

Landbúnaðartengd ferðaþjónusta (vinnuheiti)

Þegar fyrirlestrum er lokið verður veggspjaldasýning, þar sem höfundar standa við spjöld sín og kynna efni þeirra og svara fyrirspurnum. Efni veggspjaldanna þarf ekki að tengjast efni málstofanna. Þar kemur því ýmislegt til greina. Undirbúningshópurinn óskar nú eftir efni á ráðstefnuna, bæði erindum sem falla að umfjöllunarefnum málstofanna og veggspjaldakynningum. Hugmyndir óskast sendar til Fanneyjar Gísladóttur á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Auk Fanneyjar er undirbúningshópurinn þannig skipaður:

Edda Sigurdís Oddsdóttir edda@skógur.is

Guðrún Stefánsdóttir This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Halla Margrét Jóhannesdóttir This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kristín Svavarsdóttir This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image