Landsýn 2018 - aukið virði landafurða 23. febrúar í Salnum í Kópavogi

Landsýn 2018 verður haldið í Salnum í Kópavopgi föstudaginn 23. febrúar nk. Skráðu þig hér!

Landsýn er samráðsþing Hafrannsóknastofnunar, Háskólans á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands, Landgræðslunnar, Matís, Matvælastofnunar og Skógræktarinnar. Í ár er yfirskrift ráðstefnunnar Aukið virði landafurða.

Stofnanirnar sjö hafa aðkomu að afurðaframleiðslu og umhverfismálum, hvort sem er í landbúnaði, fiskeldi, annars konar landnýtingu og umhverfismálum.  Á ráðstefnunni verður fjallað um virði landafurða frá ýmsum sjónarhornum og hlutverk stofnananna í því að tryggja verðmæti afurða og sjálfbæra landnýtingu.

Bæði verður boðið upp á erindi og veggspjaldakynningu á efninu. Innifalið í ráðstefnugjaldi er hádegismatur, kaffiveitingar og léttar veitingar í lok dags. Skráning er meðan húsrúm leyfir eða til þriðjudagsins 20. febrúar.

Skráðu þig hér!

Dagskrá

10:00-10:30 Aukið virði landbúnaðarafurða – hvað getur LbhÍ gert?  Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ
10:30-10:50 Frá akri/haga í maga.  Björgvin Harðarson, bóndi í Laxárdal 
10:50-11:10 Markaðsmál og alþjóðlegt samhengi. Hvar liggja tækifærin?  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður 
11:10-11:30 Neytandinn, merkingar matvæla, kröfur neytenda.  Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu 
11:30-11:50 Er/þarf hinn gullni meðalvegur að vera á milli steins og sleggju?  Vífill Karlsson, auðlindahagfræðingur          

11:50-13:00 Matur               

13:00-13:15 Er þörf á nýsköpun í landbúnaði eða „erum við bara með‘etta“?  Sveinn Margeirsson, Matís 
13:15-13:30 Nýjar og gamlar afurðir skóganna.  Ólafur Eggertsson, Skógræktin 
13:30-13:45 Útflutningur dýraafurða – kröfur móttökuríkja.  Þorvaldur Þórðarson, Mast 
13:45-14:00 Virði afurðanna - hvert er það og hvert fer það?  Jóhannes Sveinbjörnsson, LbhÍ
14:00-14:15 Ferðaþjónusta, nýting lands og landafurða. Laufey Haraldsdóttir, Háskólinn á Hólum

14:15-14:30 Kaffihlé  

14:30-14:45 Ferskvatnsauðlindin.  Eydís Salóme Eiríksdóttir, Hafrannsóknastofnun 
14:45-15:00 GróLind – grunnur til að byggja á.  Bryndís Marteinsdóttir, Landgræðslan 
15:00-16:00 Pallborðsumræður           
          16:00 Lokaorð  Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra

Að umræðum loknum verður boðið upp á léttar veitingar. Fundarstjóri er Ingveldur Geirsdóttir, blaðamaður.

Skráning fer fram fyrir 20. febrúar hér!

Skráningargjald er kr. 5.000 kr.

Dagskrá ráðstefnunnar á pfd formi.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image