Við óskum útskriftarhópi 2019 innilega til hamingju en hann er sá stærsti til þessa og hafa nú alls 139 sérfræðingar útskrifast frá skólanum, 67 konur og 72 karlar.

Landgræðsluskólinn útskrifar sérfræðinga frá tíu samstarfslöndum

Annett Mlenga frá Malaví og Haqrizo Nurmamadov frá Tadsjikistan héldu útskriftarræðu fyrir hönd útskriftarnema 2019

Um miðjan september útskrifuðust 21 sérfræðingur, 11 konur og 10 karlar, úr árlegu 6-mánaða námi Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.

Við útskriftarathöfnina ávarpaði umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, gesti útskriftarinnar. Hann lagði meðal annars áherslu á mikilvægi landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar til að tryggja að okkur takist að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og skapa sjálfbær samfélög.

Auk umhverfisráðherra tóku til máls Árni Bragason Landgræðslustjóri og formaður stjórnar Landgræðsluskólans, Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðumaður skólans og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sem lokaði athöfninni. Þar að auki fluttu tveir útskriftarnemar ræðu fyrir hönd útskriftarhópsins, þau Annett Mlenga frá Malaví og Haqrizo Nurmamadov frá Tadsjikistan. Jón Erlingur Jónasson skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins afhenti nemunum útskriftarskírteini ásamt forstöðumanni skólans.

Meginmarkmið Landgræðsluskóla HSþ er að aðstoða þróunarlönd sem glíma við landhnignun að stuðla að sjálfbærri landnýtingu og græða upp illa farið land. Það er gert m.a. með því að bjóða hingað til lands sérfræðingum frá samstarfsstofnunum Landgræðsluskólans á sex mánaða námskeið í landgræðslu, sjálfbærri landnýtingu og endurheimt vistkerfa. Námið eflir þekkingu innan viðkomandi stofnana og landa með þjálfun starfsfólksins sem hingað kemur. Útskriftarhópurinn í ár er sá stærsti til þessa og hafa nú alls 139 sérfræðingar útskrifast frá skólanum, 67 konur og 72 karlar.

Í hópnum í ár voru sérfræðingar frá Mongólíu, Kirgistan, Tadsjikistan og Úsbekistan í Mið-Asíu og frá Eþíópíu, Gana, Malaví, Lesótó og Úganda í Afríku. Nú fara sérfræðingarnir aftur til starfa í sínum heimalöndum og miðla þar af reynslu sinni og þekkingu. Landgræðsluskólinn hefur starfað frá árinu 2007 og standa Landbúnaðarháskóli Íslands og Landgræðslan að rekstri skólans. Landgræðsluskólinn er fjármagnaður af íslenska ríkinu sem hluti af framlagi Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu.

Vefsíða Landgræðsluskóla HSþ (enska)

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image