námskeið á vegum Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra nýtingu beitilanda á tímum loftslagsbreytinga

Landgræðsluskólinn með námskeið í Mongólíu um sjálfbæra nýtingu beitilanda á tímum loftslagsbreytinga

Hópurinn samankominn í lok námskeiðsins í Mongólíu
Námskeiðsnefndinn sem hannaði námskeiðið í Mongólíu ásamt aðstoðarfólki. Fjórir starfsmenn frá Landbúnaðarháskóla Mongólíu eru með í hópnum en nýbúið er að endurnýja samstarfssamning á milli háskólanna

Nýlokið er í Mongólíu sjö daga námskeiði á vegum Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra nýtingu beitilanda á tímum loftslagsbreytinga. Landgræðsluskólinn er starfræktur undir Landbúnaðarháskóla Íslands og er með aðsetur á starfsstöð skólans að Keldnaholti í Reykjavík.

Markmið námskeiðsins var að þjálfa heimamenn í miðlun og nýtingu þekkingar á vöktun beitilanda með það fyrir augum að styrkja skilvirka stefnumótun um sjálfbæra landnýtingu. Þetta er í annað sinn sem Landgræðsluskólinn efnir til slíks námskeiðs í Mongólíu en í þetta sinn var það var haldið dagana 19. til 25. maí í grennd við höfuðborgina Ulaanbaatar. Meirihluti þeirra 25 þátttakenda sem sóttu námskeiðið voru umhverfis- og landbúnaðarsérfræðingar frá héraðsstjórnum í Mongólíu en einnig sóttu námskeiðið sérfræðingar frá ríkisstofnunum og háskólum.

Námskeiðið samanstóð af fyrirlestrum, vettvangsferð og verkefnavinnu í vinnuhópum. Allir þættir námskeiðsins miðuðu að því að auka hæfni þátttakenda til að greina á milli áhrifa landnýtingar og loftslagsbreytinga á vistkerfi, greina á milli vandaðra og óvandaðra gagna og upplýsinga, og nýta vönduð gögn og upplýsingar í stefnumótun er varða nýtingu vistkerfa. Í Mongólíu er gróður- og jarðvegsauðlind landsins metin reglulega samkvæmt matskerfi sem hefur verið þróað og aðlagað að aðstæðum þar og var stuðst við það að hluta í kennslu á námskeiðinu. Að námskeiðinu stóðu, auk Landgræðsluskólans, Landbúnaðarháskólinn í Mongólíu (Mongolian University of Life Sciences), mongólsk frjáls félagasamtök sem vinna með hirðingjum að því að bæta landnýtingu og afkomu þeirra (National Federation of Pasture User Groups of Herders), og Veður-, vatna- og umhverfisstofnun Mongólíu (Information and Research Institute of Meteorology, Hydrology and Environment).

Sex kennarar frá samstarfsstofnunum Landgræðsluskólans sáu um kennslu, auk þriggja kennara frá Íslandi sem starfa við Landbúnaðarháskóla Íslands, Landgræðsluna og Landgræðsluskólann. Jafnframt aðstoðuðu fjórir fyrrverandi nemar Landgræðsluskólans við útikennslu og ýmsa praktíska hluta námskeiðsins. Auk námskeiðahalds hér á Íslandi stendur Landgræðsluskólinn meðal annars að þjálfun sérfræðinga í þróunarlöndum til að efla færni þeirra í málefnum sem tengjast vistheimt og sjálfbærri landnýtingu.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image